UMSAGNIR ÞJÁLFARA

KRISTJÁN GUÐMUNDSSON
BEd / UEFA-Pro
"Ég var svo lánsamur að þjálfa meistaraflokks lið með Andra í fjögur ár. Á þeim árum náði ég að fylgjast með í návígi þróun á líkamsþjálfun sem Andri stjórnaði hjá liðinu okkar og þú ert hugsanlega að tileinka einhverju svipuðu að þínu eigin liði.
Stöðugar framfarir voru hjá leikmönnum á milli ára í þoli og styrk og það sem dýrmætast var að meiðslum leikmanna snar minnkaði. Það er ótrúlegt frá því að segja að við fórum í gegnum langt tímabil þar sem engin tognun átti sér stað hjá leikmönnum, eða í 2 ár og 4 mánuði samfellt! Þetta er svo einstakur árangur að við þorum ekki að segja frá því.
Útgangspunkturinn í þjálfunaráætlinunni hjá Andra er alltaf íþróttin sjálf, fótbolti. Það er því auðvelt fyrir þjálfara að tileinka sér líkamsþjálfun Andra sama hvaða aldur eða kyn þú ert að vinna með og ein aðferð gengur ekki fyrir alla heldur býr mikill sveigjanleiki í þjálfuninni sem lögð er fyrir hvert lið.
Það er því töluverður ávinningur að þiggja leiðsögn hjá Aperformance þjálfun til að auka gæði, heilbrigði og ánægju á æfingum hjá þér og þínu liði."

BRYNJAR KRISTMUNDSSON
UEFA A - Aðalþjálfari Víkings Ólafsvíkur
"Andri hjá Aperormance hefur verið þvílík lyftistöng fyrir okkur öll hjá Víking Ó.
Við höfum náð að lyfta upp öllu tempói á æfingum og þar af leiðandi sjáum við þvílíkan mun á þoli og styrk og á sama tíma verið 100% laus við allar vöðvatognanir.
Andri setur upp æfinga-fasana á mjög þægilegan hátt og hefur það hjálpað okkur þjálfurum þvílíkt upp á skipulag að gera.
Ég mæli því hiklaust með að fá Andra með sér í lið."
Aðalþjálfari Víkings Ólafsvíkur
UEFA A

PÁLL ÁRNASON
Fram - Yfirmaður knattspyrnumála
"Ég hef unnið með Andra í yfir áratug og hann er faglegasti og duglegasti maður sem ég hef unnið með.
Hann breytti því hvernig við vinnum með periodization hjá Stjörnunni og hefur fært okkur upp á næsta stig.
Hann hefur hæfileika til að útskýra flókin atriði á þann hátt að allir sem að málinu koma skilji og geti komið þeim í framkvæmd.
Hann hugsar rökrétt, sér lausnir í öllu sem hann vinnur að og á auðvelt með að aðlaga sig mismunandi hópum og aðstæðum.
Ég get ekki mælt nógu mikið með honum!"

GYLFI TRYGGVASON
Grindavík/Njarðvík MFL kvk
"Ég hef notið þeirra forréttinda að vinna með Andra undanfarin fjögur ár og ég get með sanni sagt að hann er framúrskarandi í sínu fagi.
Áreiðanlegur, duglegur og svo sannarlega skuldbundinn því að veita viðskiptavinum sínum sem besta þjónustu.
Hann leggur sig fram um að tryggja frábæra þjónustu og einstakir skipulagshæfileikar hans, þekking og reynsla hafa verið ómetanleg.
Ef þú ert að leita að einhverjum sem þú getur treyst til að skila framúrskarandi árangri, þá er Andri rétti kosturinn."

ERIN McLEOD
"I have had the pleasure of working with Andri as an athlete and also as part of his coaching staff.
The programming that he has created for all the athletes at Stjarnan FC (different ages and level of competition) is second to none. The amount of detail he spends on loading, interpreting GPS feedback, movement screening, preparation for training, speed and power, is something, as an athlete, I have benefitted from everyday.
Andri is passionate about what he does and is invested in the people that he works with to help them improve in every way he can. He is efficient in analysing the output numbers of athletes and determining load levels for the training sessions for the week and instrumental in the step by step procedure when returning from injury for athletes.
He is an absolute pleasure to work with."
Olympic Champion and 2 X medalist
4 X FIFA Women's World Cup participant
3X Olympic participant
Canadian Olympic Hall of Fame
ÞRJÁR STOÐIR
ÞJÓNUSTAN
Álagsstýring, styrktaþjálfun og GPS greining.
ÁLAGSSTÝRING
#1
Rauður þráður í gegnum allt starfið sem þjálfarar fylgja, allt tímabilið.
Ársáætlun fyrir alla flokka.
Líkamlegt plan fyrir allar æfingar.
Skýr tröppugangur upp í meistaraflokk.
STYRKTARÞJÁLFUN
#2
Byggt upp útfrá aldri. Frá yngri flokkum og upp í meistaraflokk.
Prógram fyrir hvern flokk.
Leiklíkar æfingar sem skila sér út á völl.
Í takti við álagsstýringuna.
GPS-GREINING
#3
Gögn og greining sem svara spurningunum sem raunverulega skipta máli.
Stillum af æfingaálagið úti á æfingasvæði.
Greinum frammistöðu í leikjum.
Byggjum upp player profile.

