top of page
Football Coach Using Soccer Tactics Strategy Board. Coach explaining the game plan to scho

EITT PLAN FYRIR ALLT TÍMABILIÐ

ÁLAGSSTÝRING FYRIR ÞJÁLFARA

Álagsstýring, gps greining og styrktarþjálfun sem styður við markmið og leikstíl liðsins. 

Einfalt. Færri meiðsli. Betri frammistaða.

Frá 29.900 kr á mánuði

Betri ákvarðanataka

Allt árið um kring

UMSAGNIR ÞJÁLFARA

KG.png

KRISTJÁN GUÐMUNDSSON

BEd / UEFA-Pro

​

"Ég var svo lánsamur að þjálfa meistaraflokks lið með Andra í fjögur ár. Á þeim árum náði ég að fylgjast með í návígi þróun á líkamsþjálfun sem Andri stjórnaði hjá liðinu okkar og þú ert hugsanlega að tileinka einhverju svipuðu að þínu eigin liði.

 

Stöðugar framfarir voru hjá leikmönnum á milli ára í þoli og styrk og það sem dýrmætast var að meiðslum leikmanna snar minnkaði. Það er ótrúlegt frá því að segja að við fórum í gegnum langt tímabil þar sem engin tognun átti sér stað hjá leikmönnum, eða í 2 ár og 4 mánuði samfellt! Þetta er svo einstakur árangur að við þorum ekki að segja frá því.

 

Útgangspunkturinn í þjálfunaráætlinunni hjá Andra er alltaf íþróttin sjálf, fótbolti. Það er því auðvelt fyrir þjálfara að tileinka sér líkamsþjálfun Andra sama hvaða aldur eða kyn þú ert að vinna með og ein aðferð gengur ekki fyrir alla heldur býr mikill sveigjanleiki í þjálfuninni sem lögð er fyrir hvert lið.

 

Það er því töluverður ávinningur að þiggja leiðsögn hjá Aperformance þjálfun til að auka gæði, heilbrigði og ánægju á æfingum hjá þér og þínu liði."

scrnli_YdwJT14fjVF7Et.png

JONATHAN GLENN

UEFA A þjálfari

 

"One of the biggest positives this season was our work with Andri on strength and conditioning.

 

The program was simple, practical, and easy to integrate into football training. We maintained high fitness levels, recovered well, and had very few injuries, keeping players consistently available for training and matches.

 

Its simple structure supported our on-pitch performance without unnecessary complexity."

image.png

BRYNJAR KRISTMUNDSSON

UEFA A - Aðalþjálfari Víkings Ólafsvíkur 

​

"Andri hjá Aperormance hefur verið þvílík lyftistöng fyrir okkur öll hjá Víking Ó.

 

Við höfum náð að lyfta upp öllu tempói á æfingum og þar af leiðandi sjáum við þvílíkan mun á þoli og styrk og á sama tíma verið 100% laus við allar vöðvatognanir. 

​

Andri setur upp æfinga-fasana á mjög þægilegan hátt og hefur það hjálpað okkur þjálfurum þvílíkt upp á skipulag að gera.

​

Ég mæli því hiklaust með að fá Andra með sér í lið."

​

Aðalþjálfari Víkings Ólafsvíkur 

UEFA A 

​

palli.png

PÁLL ÁRNASON

Fram - Yfirmaður knattspyrnumála

​

"Ég hef unnið með Andra í yfir áratug og hann er faglegasti og duglegasti maður sem ég hef unnið með.

 

Hann breytti því hvernig við vinnum með periodization hjá Stjörnunni og hefur fært okkur upp á næsta stig.


Hann hefur hæfileika til að útskýra flókin atriði á þann hátt að allir sem að málinu koma skilji og geti komið þeim í framkvæmd.


Hann hugsar rökrétt, sér lausnir í öllu sem hann vinnur að og á auðvelt með að aðlaga sig mismunandi hópum og aðstæðum.


Ég get ekki mælt nógu mikið með honum!"​

image.png

HÁKON ATLI HALLFREÐSSON

UEFA A þjálfari

​

"Ég hef núna unnið með Andra í 1 ár og hefur hann hjálpað mér með periodization fyrir 2 flokk karla hjá Stjornunni.

 

Andri er ótrúlega fær í sínu fagi og hefur hann hjálpað mér mjög mikið. Hann hefur auðveldað vinnu mína gríðarlega mikið og hvernig hann setur upp æfingarvikurnar hefur hjálpað liðinu mínu að vera meiðslalausir og í senn í frábæru formi.

​

Andri er góður í samskiptum og er alltaf til í að hlusta á mínar pælingar og samræma það við markmið liðsins.

​

Einnig finnst mér mikilvægt í hans þjónustu hversu góða eftirfylgni hann er með og finn ég að það skiptir hann máli hvernig mér og mínu liði er að ganga.

 

Ég mæli gríðarlega mikið með Andra og hans þjónustu."​

HILMAR ÁRNI HALLDÓRSSON

KR 

​

"Nálgun Andra á periodization hefur hjálpað mér gríðarlega þegar ég skipulegg æfingaplön.

 

Ég þarf ekki að vera sérfræðingur í líkamlegu hlutverki því ég get stuðst við þekkingu hans og í gegnum þjónustuna sem hann veitir fæ ég innsýn og þekkingu á mjög hagnýtan hátt.

​

Skref fyrir skref sýnir hann þér hvers vegna þetta er gert svona en ekki hitt, stutt af rannsóknum, og hægt og rólega verður þessi þáttur þjálfunarinnar svo miklu meðfærilegri.

​

Ég mæli eindregið með því sem Andri hefur upp á að bjóða; persónulega og faglega nálgun sem gefur þér svo mörg verkfæri til að vinna með til að stækka og vaxa sem þjálfari."​

hilmar arni KR.jpg
gylfi.png

GYLFI TRYGGVASON

Grindavík/Njarðvík MFL kvk 

​

"Ég hef notið þeirra forréttinda að vinna með Andra undanfarin fjögur ár og ég get með sanni sagt að hann er framúrskarandi í sínu fagi.

 

Áreiðanlegur, duglegur og svo sannarlega skuldbundinn því að veita viðskiptavinum sínum sem besta þjónustu.

 

Hann leggur sig fram um að tryggja frábæra þjónustu og einstakir skipulagshæfileikar hans, þekking og reynsla hafa verið ómetanleg.

 

Ef þú ert að leita að einhverjum sem þú getur treyst til að skila framúrskarandi árangri, þá er Andri rétti kosturinn."​

kalli.jpg

JÓHANNES KARL SIGURSTEINSSON

Stjarnan MFL kvk 

​

"Ég hef unnið með Andra í tæpt ár og notað uppbyggingu hans og leiðsögn varðandi álagsstýringu fyrir lið í efstu deild. Ég get svo sannarlega mælt með nálgun hans.

​

Vandað skipulag og endurgjöf hjálpar okkur að halda réttum þjálfunarálagi innan hvers þjálfunartímabils, bæði á undirbúningstímabili og á keppnistímabili. Við höfum séð góða framþróun í tölum leikmanna og meiðsli eru alltaf í lágmarki.

 

Í stuttu máli, þá er þetta mjög aðgengileg álagsstýring, þar sem hvert markmið er skýrt á hverri æfingu og yfir lotur. Við fáum stöðuga endurgjöf og er haldið á tánum.

 

Þetta kerfi uppfyllir allar kröfur til að ná árangri í líkamlegum þáttum leiksins.

erin.png

ERIN McLEOD

"I have had the pleasure of working with Andri as an athlete and also as part of his coaching staff. 

 

The programming that he has created for all the athletes at Stjarnan FC (different ages and level of competition) is second to none.  The amount of detail he spends on loading, interpreting GPS feedback, movement screening, preparation for training, speed and power, is something, as an athlete, I have benefitted from everyday. 

 

Andri is passionate about what he does and is invested in the people that he works with to help them improve in every way he can.  He is efficient in analysing the output numbers of athletes and determining load levels for the training sessions for the week and instrumental in the step by step procedure when returning from injury for athletes. 

 

He is an absolute pleasure to work with."

Olympic Champion and 2 X medalist

4 X FIFA Women's World Cup participant

3X Olympic participant

Canadian Olympic Hall of Fame

hörður umsöng.jpg

HÖRÐUR BJARNAR HALLMARSSON

Haukar MFL kvk

​

"Andri hefur hjálpað mér með tímabilaskiptingu á þessu tímabili og ég er mjög ánægður með hvernig það hefur komið út.

 

Hann er einstaklega fær þegar að kemur að líkamlega þættinum í fótbolta, og einnig hefur hann mikinn skilning á því hvernig þjálfarar hugsa leikinn sem hjálpar mikið til.

 

Allt skipulag hefur verið frábært. Leikmenn eru að sýna miklar framfarir og á sama tíma hefur enginn leikmaður meiðst í allt sumar. Ég hef lært mikið af honum og hann er alltaf með góð svör við öllum spurningum og pælingum.

 

Ég mæli klárlega með Aperformance."​

d049888e-fd71-4a77-a250-183c088ed93d.jpeg

ARNAR PÁLL GARÐARSSON

Stjarnan MFL kvk

​

"Með hjálp A Perfomance þá er auðveldara að setja upp æfingar á markvissan hátt sem nær því mesta útúr leikmönnum.

 

Meiðslatíðnin hefur verið í algjöru lágmarki og við erum að sjá leikmenn bæta hraða, hlaupatölur og styrk ennþá undir lok tímabils.

 

Með greiningum frá Andra erum við einnig að sjá munstur úr GPS gögnum gagnvart sigurleikjum sem hjálpar gríðarlega. Svo er hann alltaf að ýta undir og koma með pælingar um hvernig liðið getur bætt sig og leikmenn.

 

Ég gæti ekki mælt meira með Andra og þjónustunni sem hann býður uppá.."​

HVAÐ ÞARF ÞITT LIÐ?

Periodization fyrir knattspyrnulið. Frá styrk og þoli til GPS greininga.

ÁLAGSSTÝRING

29.900 kr á mánuði

Raunhæft og skýrt plan 

sem allir skilja

​​

​Fleiri leikmenn leikfærir

yfir tímabilið.

​​​​​

Frammistaða eykst hægt og rólega yfir allt tímabilið.​

Fyrir þjálfarateymi sem
vilja skýrt plan fyrir allt árið.

STYRKTARÞJÁLFUN

49.900 kr á mánuði

Styrktarþjálfun sem styður við álagsstýringuna. 

​​

Leiklíkar æfingar sem skila sér beint útá völl.​

​

Minni líkur á meiðslum og aukin frammistaða. 

Fyrir þjálfarateymi sem vilja að
styrktarþjálfunin skili sér út á völlinn.

GPS GREINING

49.900 kr á mánuði

Sjáðu nákvæmlega hvort æfingaplanið er að ganga upp.

​

Ákvarðanir teknar með  gögnum í bland við tilfinningu.​

​

Greinum tenginguna á milli

frammistöðu og úrslita.

Fyrir lið sem eiga GPS vestinn
en þurfa að nýta gögnin betur.

SKRÁNING Í FRÍA PERIODIZATION KYNNINGU

Fáðu innsýn í hvernig markvisst periodization getur bætt líkamlega frammistöðu
Ræðum verkefnið og hvernig/hvort A PERFORMANCE henti þér.

Hvert er þitt hlutverk?
Sjálfboðaliði
Starfa við stjórnun félagsins/liðsins
Þjálfari
Annað
Hverju hefur þú áhuga á?
bottom of page