top of page
Image by Bence Balla-Schottner

ÞJÁLFUN SEM ER HÖNNUÐ FYRIR FÓTBOLTA

FJARÞJÁLFUN FYRIR LEIKMENN

Persónulegt prógramm í appi sem tekur mið af æfinga- & leikjaálagi.

Einfalt. Færri meiðsli. Betri frammistaða.

Frá 4.900 kr á mánuði

Engin binding

Allt árið um kring

SKREF 1 AF 2: HORFÐU Á MYNDBANDIÐ

Á næstu 7 mínútum förum við yfir vandamálin sem fylgja
aukaæfingum og hvernig við getum leyst það. 

SKREF 2 AF 2:
SKRÁÐU ÞIG Á KYNNINGARUND

Fyrsta skrefið er að vega og meta hvernig
A PERFORMANCE getur
 hjálpað þér að taka næsta skref. 

UMSAGNIR

HELGI G.jpeg

HELGI GUÐJÓNSSON
VÍKINGUR REYKJAVÍK 

"Ég var virkilega hrifinn af þjónustunni hjá A Performance. Prógrammið hjálpaði mér mikið að verða 100% ferskur fyrir leiki þrátt fyrir marga leiki á skömmum tíma.
 

Það sem stóð uppúr voru einfaldar aðferðir sem ég notaði bæði til að bæta svefn og rétt fyrir leiki. Þær virkuðu mjög vel fyrir mig. Samskiptin voru virkilega góð og ég fékk alltaf nákvæm og góð svör við spurningum.

 

Ég mæli eindregið með þjónustunni hjá A Performance ég fann sjálfur mikla bætingu á minni endurheimt og það er auðveldara að framkvæma hlutina þegar maður fær svona skýrt og nákvæmt plan að fylgja."

07431912-cbe4-4f91-bf5c-b11160314220.jpeg

SÆDÍS RÚN HEIÐARSDÓTTIR
FC Köln

"Ég prófaði recovery-prógrammið hjá Andra í mikilli leikjatörn þar sem stutt var á milli leikja og fann fljótt mun.

 

Ferlið var einfalt, vel upp sett og auðvelt að fylgja með fullt af litlum venjum sem auðvelt er að gleyma í miklu álagi, en taka stutta stund og skila miklu þegar upp er staðið.

 

Samskiptin við Andra voru líka mjög fagleg og þægileg, og maður fann að hann vissi nákvæmlega hvað hann var að gera. Ég mæli hiklaust með recovery prógramminu fyrir alla sem vilja taka endurheimtina sína á næsta level."

9b5fd260-8bff-4c23-a411-2dd5f34324f0.jpeg

HEIÐA RAGNEY VIÐARSDÓTTIR
ESKILSTUNA UNITED

"Recovery prógrammið hentaði mér einstaklega vel. Ég var orkumeiri á æfingum og jafnaði mig hraðar milli þeirra.

 

Það kom best í ljós þegar stutt var á milli leikja, í seinni leikjunum var ég jafn fersk og í þeim fyrri, sem kom mér virkilega á óvart.

 

Eftir að ég byrjaði á MD+1 æfingunni frá Andra hvarf líkamlegi stirðleikinn sem ég var vön að vakna með eftir leiki.

 

Öll samskipti mjög fagmannleg og æfingar með góðar útskýringar svo maður veit ástæðurnar á bakvið allt sem skiptir mig máli!"​

kalli.jpg

KARL GUNNARSSON 
VÍKINGUR REYKJAVÍK 

"Recovery prógramið hjá Andra hefur hjálpað mér gríðarlega mikið á núverandi tímabili.

 

Ég er búinn að læra helling af æfingum og góðum ráðum þegar kemur að recovery sem hjálpar mér að halda þreytu og stífleika í lágmarki. Ég mæli með þessu prógrami fyrir þá sem vilja læra mikilvægi endurheimtar og mikilvægi umhugsunar líkamans og þarfir hans utan vallar.

 

Ég er þakklátur Andra fyrir vinnu hans á bakvið tjöldin að hjálpa mér að hámarka frammistöðu mína inná fótboltavellinum."

ulfa bb.jpg

ÚLFA DÍS KREYE ÚLFARSDÓTTIR
BREIÐABLIK 

"Recovery þjálfunin hjá Andra gaf mér nýja sýn á hversu mikilvæg endurheimt er fyrir íþróttafólk.

 

Þjálfunin er mjög skipulega sett upp og með hverri æfingu fylgir góð útskýring á því hvers vegna maður er að gera hana.

 

Ég mæli hiklaust með þessu fyrir allt íþróttafólk. Það er aldrei hægt að sinna endurheimt of vel."

emma.jpeg

EMMA FANNDAL
GRINDAVÍK/NJARÐVÍK

"Ég er mjög ánægð með reynsluna sem ég fékk út úr þessu prógrammi. Það hjálpaði mér að búa til betri venjur, minnka stress og verða betri útgáfa af sjálfri mér.

 

Æfingarnar höfðu meiri áhrif en ég bjóst við. Ég átti auðveldara með að sofna á kvöldin og fann að stífleiki minnkaði. Stærsta breytingin var samt hversu miklu hraðar líkaminn jafnaði sig eftir æfingar og leiki. Ég fór líka að hugsa betur um mataræði og svefn, sem hafði jákvæð áhrif á bæði líðan og frammistöðu.

 

Prógrammið er vel upp sett og aðgengilegt með góðum leiðbeiningum. Ég mæli hiklaust með þessu fyrir aðra, sérstaklega íþróttafólk sem vill bæta frammistöðu og tileinka sér góðar venjur."

hilmar.jpg

HILMAR ÁRNI HALLDÓRSSON
KR

"Andri Freyr er vel skipulagður og metnaðarfullur þjálfari sem leitast stöðugt eftir því að ýta þér lengra.

Hann sýnir þér mikinn áhuga, hlustar á endurgjöf og er alltaf tilbúinn að leggja meira á sig.

Ég mæli hiklaust með Andra sem þjálfara!"

scrnli_h2J4o34VRV8Hvq.png

ALMA MATHIESEN
HK

Ég gæti ekki mælt meira með þjálfuninni hjá Andra en hann hjálpaði mér með styrktarþjálfun, álagsstýringu og endurheimt á tímabilinu. 

 

Fyrir tímabilið settum við okkur skýr markmið sem við unnum að yfir sumarið, ferlið var ótrúlega skemmtilegt og lærdómsríkt.

 

Þjálfunin hjá Andra kenndi mér að meira er ekki alltaf betra og mikilvægi þess að hugsa vel um sig og virða hvíldardagana. 

 

Skipulagið á æfingavikunum gerði mér kleift að æfa af fullum krafti án þess að það kæmi niður á frammistöðu í leikjum. 

 

Það er mjög gott að vinna með Andra, hann er þjálfari sem hefur endalausan metnað, mætir þér þar sem þú ert og finnur leiðir til að gera þig betri!

anna maría.png

ANNA MARÍA BALDURSDÓTTIR
STJARNAN

Ég hef verið í þjálfun hjá Andra í mörg ár og hef á þeim tíma markvisst bætt mig og minnkað vöðvatognanir og eymsli til muna.

Á mínum yngri árum í fótbolta glímdi ég við ýmiss konar meiðsli en hef með hjálp Andra unnið sérstaklega í því að bæta þá veikleika með forvarnar æfingum. Því hef ég síðastliðin ár náð að spila meirihluta tímabila og sloppið við óþarfa meiðsli. Það er frábært að vinna með Andra.

Hann er með mikla reynslu og þekkingu í þjálfun þegar kemur að líkamlega þættinum og hvað þarf til þess að taka næsta skref sem leikmaður.

Mæli heldur betur með þjálfun hjá Andra!

GABY.png

GABRÍEL HRANNAR EYJÓLFSSON
KR

Ég mæli heilshugar með Andra Frey sem styrktarþjálfara fyrir knattspyrnuiðkendur. Hann hefur ekki bara djúpa þekkingu á styrktar- og þolþjálfun, heldur líka á sjálfum leiknum – og það skín í gegn í allri hans nálgun.

Andri tengir styrktarþjálfunina markvisst við það sem gerist inni á vellinum, og allar æfingar sem hann leggur upp með hafa skýrt hlutverk. Það er aldrei verið að æfa bara til að æfa – heldur með það að markmiði að bæta frammistöðu í leik, styrkja leikmenn líkamlega og koma í veg fyrir meiðsli.

Það er greinilegt að Andri leggur sig fram við að hámarka árangur hvers og eins og hann nær vel til leikmanna. Þeir sem vinna með honum eru í góðum höndum.

“Ég er að æfa meira en ég gerði áður og á sama tíma finn ég fyrir minna af þreytu."

LEIKMAÐUR Í 2 FL KK

HVAÐ ÞARFT ÞÚ
AÐSTOÐ MEÐ?

STYRKTARÞJÁLFUN

11.900 kr á mánuði

Vinnur fleiri einvígi

og minnkar líkur á meiðslum.

​

Verður sneggri fyrstu metrana og hoppar hærra.

​​

Heldur styrknum allt tímabilið

í stað þess að tapa honum.​

Engin binding

Fyrir leikmenn sem vilja að
prógrammið sé hannað fyrir fótbolta.

PREPP & PREHAB

9.900 kr á mánuði

Færri leikir utan hóps

vegna meiðsla

​

Sterkari ökklar, hné, aftanlæri. Þar sem algengustu meiðslin koma fram. 

​​

Spilaðu leikin án þess að hafa

áhyggjur af meiðslum. ​

Engin binding

Fyrir leikmenn sem vilja að
byggja traustan grunn

ÞOLÞJÁLFUN

frá 4.900 kr á mánuði

Ert ennþá að spretta og hugsar skýrt á seinustu mínútunum.

​

Jafnar þig hraðar á milli spretta og sprettar oftar í leik.

​​

Byggir upp þolið sem

þín leikstaða þarf. ​

Engin binding

Fyrir leikmenn sem leiklíka
þolþjálfun fyrir sína leikstöðu.

ENDURHEIMT

9.900 kr á mánuði

Minna af stirðleika og eymslum

eftir leiki og erfiðu æfingarnar.

​

Getur æft meira og af meira krafti án þess að brenna út.

​​

Betri frammistaða og minni líkur á meiðslum​

Engin binding

Fyrir leikmenn sem
æfa og spila mikið.

ÁLAGSSTÝRING

9.900 kr á mánuði

Veist alltaf hvenær á að gefa í og hvenær á að hvíla.

​

Komdu í veg fyrir ofþjálfun og

stöðnun þrátt fyrir að æfa mikið.

​​

Gríptu þreytumerkin áður en þau

verða að vandamáli.​

Engin binding

Fyrir leikmenn sem æfa mikið en
vantar að skilja heildarmyndina.

INNIFALIÐ Í 
ALLRI ÞJÓNUSTU

Allt á sama stað í APPI.
​

Alltaf aðgangur að þjálfara í gegnum appið með skilaboðum. 
 

Reglulega samskipti með því markmiði að stilla prógramið svo það sé nákvæmlega það sem þú þarft. 
 

Videofundur þegar þú villt.
 

Afsláttur hjá Hreysti.

​

​Fagleg og persónuleg þjónusta allt árið um kring. 

A-performance - svartur.png
Performance quiz

SKRÁÐU ÞIG á kynngarfund

Fyrsta skrefið er að vega og meta hvernig við
getum hjálpað þér að taka næsta skref. 

Hvaða þjónustu hefur þú áhuga á?
Soccer Field
A-performance - svartur.png

A PERFORMANCE sérhæfir sig í því að hámarka árangur félaga, þjálfara og leikmanna með markvissri þjálfun, faglegri ráðgjöf og einstaklingsmiðaðri nálgun.

bottom of page